Tökum höndum saman og gefum börnum tækifæri til betra lífs! 

Íslenska barnahjálpin er rekin í sjálfboðavinnu án yfirbyggingar. Félagið styður við skóla á fyrir börn á fátækum svæðum í KeníaVið rekum starfið með stuðningi frá stuðningsaðilum og rennur það óskert í til reksturs á skólunum. Hægt er að styrkja barn, styrkja starfið almennt, kaupa gjafakort eða bókina Hringfarinn.

Smelltu á hlekkina hér á heimasíðunni til að skoða möguleikana.

k1.jpg

Kenía

Skólarnir í Kenía ganga undir nafninu Harvestskólarnir. Þeir eru staðsettir í Nairobi og í Loitoktok sem er í Masaailandi við rætur Kilimanjaro. Samtals eru um 650 nemendur í skólunum. Í  Nairobi er skólinn staðsettur í hverfinu Kariobangi sem stendur á mörkum nokkurra fátækrarhverfa. Í skólanum eru nú um 530 börn og unglingar frá þriggja ára til tvítugs. Nemendurnir koma frá allra fátækustu fjölskyldunum og voru valin inn í skólann vegna þess að fjölskyldur þeirra gátu ekki séð fyrir þeim eða boðið þeim uppá skólagöngu. Öll dagvistarbörn fá hádegismat í skólanum en þar að auki eru um 80 börn í heimavist, búa í skólanum og fá þar morgun - og kvöldmat. 

Í Loitoktok er rekinn menntaskóli fyrir 150 nemendur sem allir eru í heimavist. Nemendurnir koma bæði frá Loitoktok héraði og Nairobi. 

Takk fyrir að rúlla alla leiðina niður síðuna!

Hvaða þýðingu hefur stuðningurinn minn?

Þegar þú styrkir barn þá breytir þú lífi þess. Þú gefur barninu tækifæri til að fara í skóla sem það hafði ekki áður. Þú gefur því einnig sjálfsvirðingu, framtíð að stefna að og stað í þjóðfélaginu. Þegar þú styrkir barn hjálpar þú í raun svo miklu fleirum. Þú hjálpar fjölskyldunni allri því að þú léttir af þeim byrðinni og áhyggjunum. Að auki hjálpar þú einnig öðrum börnum í skólunum sem ekki eru með stuðningsaðila. Stuðningur þinn fer í að reka skólann sem barnið þitt er í. Hann borgar laun kennara og starfsfólks, kaupir í matinn, borgar prófin, og kaupir bækur. Ekki er gert upp á milli barnanna og því njóta óstudd börn einnig góðs af þínum styrk.

Að auki gerir stuðningurinn kannski eitthvað fyrir þig. Það segir á góðum stað að sælla sé að gefa en að þiggja. Við hjá Barnahjálpinni finnum fyrir því og vonumst til þess að þú gleðjist einng í hjarta þínu yfir þeirri gjöf að geta hjálpað barni í neyð.