Viltu heimsækja okkur til Kenía?

Fyrirhuguð er ferð til Kenía í Janúar 2026 í samvinnu við Ferðasýn

Skólaheimsóknir - menning - safarí og strönd

Við bjóðum upp á ferðir til Kenía á einstaklega góðu verði. Ferðin er mikil upplifun og ævintýri sem er samofin af náttúrufegurð, dýralífi og menningu Kenía.
Við heimsækjum grunnskóla og menntaskóla sem Íslenska barnahjálpin starfrækir í fákærahverfum Nairobi og í Loitoktok í Masaailandi við rætur Kilimanjaro. Ferðamenn fá að kynnast skólastarfinu og aðstæðum barnanna, en líka þjóð og landi á persónulegan hátt. Einnig verða tveir þjóðgarðar skoðaðir, sem og heimsókn á ströndina við Indlandshaf í Mombasa.
Fararstjórar eru Þórunn Helgadóttir stofnandi starfsins í Kenía ásamt Ingveldi Ýri formanni Íslensku barnahjálparinnar.
Ferðin er farin í samstarfi við ferðaskrifstofuna Ferðasýn ehf.

Verð á ferðinni með flugi verður á bilinu kr. 500.000-550.000.-

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband í gegnum netfangið: barnahjalpin@gmail.com eða keniaferdir@gmail.com

 

Ferðaplan:

Flogið frá Keflavík í gegnum Oslo og þaðan til Nairobi með Qatar airways.

Nairobi

Gisting á gistiheimili Íslensku barnahjálparinnar í góðu hverfi. Kynning á kenískri menningu. Heimsóknir í Harvestskólann þar sem tekið er á móti okkur með einstökum kenískum hætti.
VIð kynnumst skólastarfinu betur og förum í heimsóknir til fjölskyldna nemenda Harvestskólanna. Stuðningsaðilar fá tækifæri til að hitta og heimsækja stuðningsbörn sín.

Boðið upp á heimsóknir í Þjóðminjasafnið og snákagarð, teræktarsvæðið í hæðunum fyrir ofan Nairobi og Gíraffagarðurinn og Karen Blixen safnið og danssýningu. Borgin skoðuð og hægt að versla.

Loitoktok

Keyrt til Loitoktok, gisting á gistiheimili Íslensku barnahjálparinnar við rætur Kilimanjaro.  
Heimsóknir í heimavistarskóla Harvestskólanna og til Masaai fjölskyldna.
Varðeldur og kenískur kvöldverður.

Safarí: Amboseli og Tsavo West

Safaríferð um Amboseli þjóðgarðinn, sem liggur við rætur Kilimanjaro og er kallaður fílahöfðuborg heimsins. Þar má sjá flestar tegundir villtra dýra sem finnast á slíkum stöðum..

Tsavo West er víðfeðmur, afskekktur náttúrugarður sem skartar einstaklega fallegu landslagi.
Gist verður á afar fallegu safaríhóteli, farið í safarí um svæðið og einnig til Mzima springs þar sem flóðhestar og krókódílar hreiðra um sig.

Keníska ströndin - Mombasa

Lestarferð til Mombasa, þar sem slökun við ströndina tekur við á góðu hóteli við hið einstaka Indlandshaf. Boðið upp á bátsferðir að kóralrifi, snorkl og skoðunarferðir um sögufræga gamla bæinn í Mombasa.
Flogið frá Mombasa til Nairobi seinnipartinn og áfram til Íslands um kvöldið.

Innifalið í verðinu:

Nairobi og Loitoktok:
Innifalið:
Öll gisting, bílar og lestarferð. Matur að meðaltali tvær máltíðir á dag.
Ekki innifalið: Máltíðir á veitingahúsum og kaffihúsum. Aðgangur á söfn og garða.
Gjafir í heimsóknum til fjölskyldna. Vegabréfsáritun til Kenía.

Safari
Innifalið:
hótel með þremur máltíðum, bílar og aðgangseyrir í þjóðgarða.
Ekki innifalið: Drykkir á hótelunum, þjórfé.

Keníska ströndin:
Innifalið
: Lest, bíll frá lest á strandhótel, bíll á innanlandsflugvöll, innanlandsflug, morgunmatur og kvöldmatur á hótelunum.
Ekki innifalið: Hádegismatur í lest og á veitingastöðum, drykkir á hótelunum, þjórfé, bátsferð.

IMG_9698.JPG